Mínar Pælingar
aðrir bloggarar
Myndir
Áhugavert
Leitarbox

20.08.2006 18:37:30 / mini

sól og blíða úti

já það er alveg meiriháttar hvað fólk er duglegt við að kommenta inna síður. allavega þá var sandspyrna í gær og verð ég nú bara að segja að ég hef séð þær skemmtilegri. bara 2 krossarar reyndar klikkuðu 2 hjól á föstudagskvöldinu, fórum nebbla inna sand að sjá halla og didda æfa sig og diddi steikti kúplinguna í hayabusuni sinni og halli braut keðjustrekkjarann á hondu sem hann var á. þannig keppnin var ekkert spennandi. þannig það var farið heim og hjólið var þrifið og bónað:haha:

svo náðum við að afreka helling í dag, vorum komin út fyrir hádegi að slá lóðina, svo var hún rökuð og svo var hokky dótið hengt upp því að fyrsta old boys æfingin verður í kvöld jibbí:haha::haha::haha: svo fórum við og kláruðum að lakkhreinsa skodann.og breyttist hann aðeins við það.:$

annars skrifa ég örugglega lítið næstu daga því það er víst vinna til 20 þessa og næstu viku. svo bíð ég bara spennt eftir að kvenna hokkyið byrji. jæja lasagnettið fer að verða til þannig að ég kveð í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 13:50:46 / mini

ís sem þýðir hokky

Fréttir: það verður kominn ís eftir viku sem þýðir að það verður hokky eftir viku júhú. og ég á eftir að redda mér markmannspúðum :evil: en ætli ég verði ekki í afgöngum þangað til. það má ekki sleppa hokkyæfingu:haha:

en semsagt þá var hópferð á fiskidaginn á dalvík í gær og var bara slatti af hjólum mætt allsstaðar af landinu sem er bara gott mál. nema það var alltof mikið af fólki. bsa hjólið hans valla komst bara hálfa leið til dalvíkur þá dó það og diddi sat fastur með v-roadinn sinn í 5 gír  semsagt stuð hjá þeim.  svo ákváðum við að bruna inna mela að sjá flugmódelasýninguna sáum nokkrar flottar fljúga og eina þotu og enginn tók uppa því að krassa í þetta skiptið.  jæja þetta er fínt í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 20:18:18 / mini

framhald

gleymdi einu. Við fórum í smá road trip á mini alla leið í ásbyrgi á útitónleika með sigurrós sem voru bara mjög fínir tónleikar því það er allt öðruvísi að hlusta á þá live en í imbanum eða á cd. já semsagt mini kemst uppi 130 með 4 innanborðs og eyddi hann ekki nema ca 7 á 100 en svo keyrðum við aðeins hægar til baka og vorum komin um klukkan 2.  Semsagt ég fór í ásbyrgi sem ég hef aldrey gert áður, hlustaði á sigurrós live sem ég hef aldrey gert áður og fór í road trip á mini sem ég hafði heldur aldrey gert áður þannig þetta var bara mjög fínt þegar upp var staðið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 20:05:27 / mini

goðan daginn.

jaja ég er hérna er bara ekki búin að nenna að skrifa. en hver er komin með samning 'EG jaja ég komst á samning hjá blikkrás sem er algjör snilld:haha::haha::haha:

annars ákvað ég að vera heima í dag með hálsbólgu en ég ætla nú í vinnuna á morgun. já hmmm það er komið nýtt framdekk undir súkkuna mína og þetta er bara nýtt hjól, ætlum svo á því í hópaksturinn til dalvíkur á laugardag á fiskidaginn. já og hjólið gengur bara einsog klukka núna hhaha.

annars gengur okkur bara vel í íbúðinni okkar jaja þetta er algjör snilld. Svo var víst versló um síðustu helgi og vorum við bara mest í sveitinni hjá frænku minni og var það bara fínt, alltaf gott að vera í sveitinni. reyndar löbbuðum við í gegnum miðbæinn á laugardagskvöldinu og guð minn góður bærinn var stútfullur af 14, 15 ára gelgum í mini pilsum og framleiddu píkuöskur þannig við drifum okkur heim og horfðum á imbann. horfði meðal annars á brimbretti á extreme stöðinni, algjör snilld, afhverju getur ekki verið avona gott veður á íslandi:evil: fúlt.

jæja þetta er gott í bili, þangað til næst bless í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 21:15:11 / mini

a

jaja ég er ekkert búin að vera að skrifa enda líka nóg að gera ov svo finnst mér lika skemmtilegra að vera uti á sumrin þannig ég skrifa kannski ekkert mikið í sumar . vinna, hjóla, laga bilað hjól, slá , raka, hanga úti. og er á leiðinni út núna. bæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 22:26:33 / mini

'I minningu um heidda

Sá sorglegi atburður átti sér stað sunnudaginn 2 júlí að Heiðar Þ Jóhannsson lést í bifhjólaslysi fyrir sunnan.

mesti mótorhjólatöffari landsins er nú farinn á annan stað að purra. þetta var með þeim síðustu sem maður hélt að myndi deyja svona snemma og það á hjólinu sínu. Ég þekkti hann kanski ekki mikið eða lengi en þetta litla sem ég kynntist honum var mér mikill heiður. hann aðstoðaði okkur mömmu t.d. að kaupa okkar fyrsta hjól og ég fékk þann heiður að hann treysti mér að keyra eitt af gömlu hjólunum sínum moto guzzi. en núna helduru áfram að hjóla hinumeginn þangað til við hittumst öll aftur því eitt vitum við og það er að allir deyja einhverntímann. vil ég votta vinum og fjölskyldu samúð mína. guð geymi þig.

Hér er svo að finna síðu í minningu um heidda www.sniglar.is/minning/index.php?1=Heidda


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 15:54:14 / mini

mála mála mála

jájá ég er hérna ennþá. alltaf það sama samt er bara búinn að vera vinna til 8 flest öll kvöld. fór svo í gær niðrá vélsmiðju þar sem öllum iðnaðarmönnunum var boðið til veislu í tilefni að byko er búið. og var maturinn algjör snilld, alveg geggjað góður. það voru samt andlit þarna sem maður kannaðist við annars vorum við frá blikkrás bara saman á borði, það hefðu samt fleiri mátt mæta frá okkur en við vorum þarna            ég, jón bali, jón þ, ingvar, svo kom lúlli eftir mat og svo mætti jón rúnar en bara til að vinna.

og núna er maður bara að klára mála þetta eldhús og herbergið. það er einhver bleyta sem dettur af og til úr skýunum þannig ég bíð bara með að hjóla en kanski fær maður sér hring í kvöld:haha:  

já ég fór líka í klippingu á föstudag og var bara slatti tekinn af hárinu sem er reyndar bara fínt alveg ágætt að breyta til.

jæja ætla að rölta úti hverfisbúðina okkar og kaupa kók og halda áfram að mála. bless í bili,


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 22:12:01 / mini

hæhæ og hó hó

jæja gott fólk ég er komin aftur í bæinn. var semsagt í kröflu að vinna, nánartiltekið kanski þar sem kísiliðjan var og vorum ég og jón rúnar að klæða rör. og verð ég bara að segja það að þetta var bara fínt og gaman og flott landslag sem skemmdi ekki en djö... hvað þessar mýflugur voru að gera útaf við okkur dísjús það ætti að útrýma þessu ógeði.   Þar sem þeir voru að hleypa allri gufuni út vegna viðgerða(þá er ekkert heitt vatn) þá ákváðum við að skella okkur í jarðböðin sem var svona ótrúlega fínt fyrir utan verðið 1100 kr þannig við ákváðum að vera eins lengi og við gátum til að nýta þennan bévítans  peninginn. síðan kláruðum við bara afganginn í dag og er ég bara komin heim.

fór á mótorhjólið mitt á sunnudagskvöldið í veðurblíðunni mmmmm tímdi ekki að hætta hjóla. en auðvitað rúntuðum við líka á föstudaginn og um daginn á sunnudeginum, fórum meðal annars inní vín. held samt að ég sé búin að skrifa þetta inná síðuna hmmm.

jæja ég ætla fara kúra í rúminu mínu með dúa. bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:59:01 / mini

komin í íbúðina

jæja komið þið sæl öll sömun. erum loksins komin með netið aftur. en það sem hefur gerst er það að við erum flutt jibbí:haha::haha::haha::haha: erum búin að mála veggi og gólf og meirasegja parketleggja líka og núna er bara svefnherbergið eftir þannig við sofum í stofuni í nokkra daga en það er núa bara fínt. annars gat ég nú ekki hjálpað mikið við að parketleggja því ég var alltaf að vinna til 8 í síðustu viku því það er bara meira en nóg að gera í vinnuni. þannig að sigurjón var svo góður að hjálpa dúa að parketleggja og fær hann miklar þakkir fyrir það.

Annars er ég á leiðinni á mývatn á morgun að vinna , nánar tiltekið á kröflu að klæða gufurör og kem ég ekki aftur heim fyrr en á miðvikudag, geggjað stuð.

Svo rann hjólið mitt í gegnum skoðun auðvitað en ekki hvað hahahaha. og erum við búin að rúnta eitthvað eftir það, fórum til dæmis inni vín í dag með heidda, óttari og einhverjum öðrum sem ég veit ekki hvað heitir , og var þetta bara fínn rúntir. ætla svo að reyna plata mömmu á rúntinn á eftir.

svo gengur allt bara sinn vana gang hérna, vinna , fara heim og brasa í íbúðinni , mótorhjól, sofa og þvælast um.

ég er nú pottþétt að gleyma einhverju enda er líka langt síðan ég hef skrifað og mergt búið að gerast en það dettur þá bara inn á næstunni. bless í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 23:50:29 / mini

'A MORGUN GERIST ÞAÐ

sko þið verðið bara að afsaka það að ég hef ekkert skrifað, það vantar bara aðeins fleiri klukkutíma í daginn. hef verið að vinna stundum frameftir, valli og dúi stilltu hjólið mitt í gær sem að ingó í dedion átti núa að hafa gert enda fær hann líka að heyra það en núna malar hjólið einsog köttur og er planið að fara með það í skoðun á morgun svo að maður verði nú löglegur á 17 júni:haha:

fórum á bílar og sðort sýninguna og var það bara flott sýning, fullt af dóti sem mér langaði í :haha: aðallega hjól en sá líka flotta bíla samt enga japanska takk fyrir það er rusl.

fór semsagt fyrsta rúntinn á hjólinu mínu í sumar bara núna áðan og það var yndislegt og núna líður mér vel:haha::haha::haha: mmmmm. og vorum við 3 að hjóla saman, semsagt ég , mamma og valli. takk fyrir rúntinn:haha:

OG nú fer stóra stundin að renna upp, 'A MORGUN fáum við íbúðina júhúuu er orðin verulega spennt, trúi þessu ekki fyrr en við verðum bara flutt hehe.  þá er planið á næstuni það að við verðum að vinna í íbúðinni næstu daga við að mála, rífa teppi af , parketleggja og koma sér svo fyrir þannig ég mun kanski ekki skrifa mikið á næstunni en reyni að skjóta inn einhverju. þannig bar bless í bili og næst mun ég skrifa úr nýju íbúðinni:haha::haha::haha::haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 23:24:10 / mini

nýji kofinn er alveg að verða okkar.

ok það eru núna nákvæmlega 933 gestir búnir að koma inna síðuna mína og sá/sú sem verður númer 1000 fær að sleikja á mér tærnar hahaha.takið eftir því að það er heiður að fá að gera það hahahahaha. já vorum semsagt í reykjavík um helgina fórum á bílar og sport sýninguna og ikea og auðvitað á AMERICAN STYLE. mmmmmmmm. en er að pæla að fá að segja frá öllu á morgun þarf að fara skipta um á sænginni og fara svo að hátta en samt ekki klukkan átta því klukkan er að verða hálf tólf hahahahhahahahahahhahahahahahahhahahah

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 16:18:14 / mini

10 dagar

jæja úti er rigning sem var reyndar að byrja bara. en það er samt gott veður, heitt en samt engin sól.  Erum búin að vera deyja úr leiðindum í allan dag fórum þá bara og þrifum skodan svo fórum við í búðina og núna vitum við ekkert hvað á að gera:(

EN ef maður ætti thumpstar þá þyrfti sko ekkert að spyrja hvað maður væri að gera:haha: iss piss. ég á sko eftir að fá mér svona.

Fórum samt í gærkveldi og byrjuðum að setja saman mótor úr ss 50 en kallinn hennar mömmu á fullt af svoleiðis dóti og væri örugglega hægt að búa til 2 eða 3 úr öllu dótinu. fínt svona þegar manni leiðist full mikið.

En núna sit ég fyrir framan tölvuna og hlusta á ipodin minn og er að reyna finna eitthvað að gera. ætla samt í búðir á morgun og skoða ýmislegt hjólatengt dót:haha: ég er bara að farast. nóg um það í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 17:29:22 / mini

THUMPSTAR

já gott fólk THUMPSTAR er málið þetta er bara algjör snilld. Fórum semsagt í heimsókn inná akur áðan en þar býr frændfólk mitt sem er linda systir mömmu hlynur kallinn hennar og krakkarnir sem eru í þessari röð(byrja á yngsta) Vigfús, Laufey, Elísabet, íris , Kolla og svo tommi sem er 2árum yngri en ég. já semsagt í þessari sveit var ég alltaf í þegar ég var yngri en svo komst ég á gelgjuskeiðið og fannst skemmtilegt að vera í bænum sem var notla bara stór misskilningur því að það er aldrey neitt að gera í þessum leiðinlega bæ. og því fannst mér mjög gaman að fara í sveitina áðan en allavega þá er hlynur búinn að kaupa sér thumpstar sem ég fékk að prófa með leyfi frá tomma því að hlynur var villtur uppí fjalli (takið eftir að hlynur er í björgunarsveitini) og fannst okkur það mjög svona skondið en já þetta hjól  er semsagt bara ALGJÖR SNILLD og ég ætla sko að fá mér svona fljótlega og byrja aftur að vera í sveitinni um helgar. :haha::haha::haha: þá er bara að byrja að safna.

og einsog venjulega þá gerðum við ekki mikið í gærkveldi eftir matinn. ég væri bara til í að búa í sveit einhverntímann já gott fólk það er inn. hehe.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 21:44:46 / mini

12 dagar

já góðan daginn það er svoltið langt síðan ég skrifaði síðast.  það helsta sem er búið að gerast er að valli lánaði okkur harleyinn sinn á miðvikudag og var það algjör snilld, rúntuðum með mömmu og tókum eyjafjarðahringinn og sofnaði maður vært um kvöldið:haha: 

svo í gær sem var föstudagur þá lánaði mamma okkur hjólið sitt og var það líka geggjað já og það hjól er af gerðinni yamaha warrior usss svaka hjól;)

svo í dag þá prófuðum við súkkuna mína og ég held að við þurfum að kíkja á kúplinguna og ætlum við að drífa í því á morgun því það er löngu tímabært að fara koma henni í stand.er að farast úr spennu við að fara hjóla á því8|

Síðan í dag þá var svona geggjað gott veður alltaf í kringum 15 stiga hita og sumstaðar heitara. skruppum á greifatorfæruna sem var svosem ágætt en það voru nú bara 3 bílar sem gátu eitthvað og hinir voru alltaf að bila þannig við nenntum ekki að klára horfa á hana, eftir það skruppum við í innbæinn til teingdó og þar var notla bara geggjað veður blankalogn og steikjandi hiti mmmmm ég elska þannig veður:haha::haha::haha:  síðan var grill útí einholti hjá mömmu og valla og þar voru mætt amma, óli frá skagaströnd og rósa(mamma valla) og eftir það þá bættist í hópinn því það kom hjólafólk frá sauðárkróki en það voru addi,öddi og guðrún.

en þar sem kvöldið er nú ekki búið þá get ég ekki skrifað meira í bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 22:02:54 / mini

16 dagar

jæja já sit fyrir framan tölvuna og er að bryðja nammi mola:haha: svona sterka mola.

fór ó street hockey í gærkveldi og var það helvíti fínt bara tókst að þruma boltanum nokkrumsinnum í netið , sko mig markmenn geta líka skorað:P   síðan var það bara vinnan í dag ég og dóri byrjuðum aftur á því að koma þessu loftræstikerfi upp í baldurshaga og ég kafnaði næstum úr hlátri þegar það frussaðist allt í einu vatn úr einni pípuni og beint yfir hann hahhahaha , það var það eina skemmtilega sem gerðist í vinnuni í dag (það er samt ekkert leiðinlegt í vinnuni.)

Og loksins er mini kominn á ný dekk össs maður geggjað flottur núna , en hann var það notla fyrir hehe.   

já og það var bara geggjað gott veður í dag, svo ætla ég að óska axel bróðir mínum til hamingju með það að vera orðinn flugkennari. flottastur. maður lætur hann reyna að kenna sér einhverntímann.  meira verður það ekki í dag blesss


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4